VERKIÐ | UPPLÝSINGAR
Í leit að landslagi,
leynist töfraheimur jurta
fegurð fjalla
Í nærmynd skýrast smáatriðin
heill heimur opnast
undur sem enginn hefur séð
Að kvöldi er jörðin horfin
aðeins óljós tilfinning eftir
Minningin mótast að nýju
umbreytist aftur og aftur
eins og við munum hana
Nýtt landslag birtist okkur
óþekkjanlegt frá fyrri sýn
ekkert er eins og það var